Víkingur hefur blandað sér í baráttuna um sóknarmanninn Árna Vilhjálmsson samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Íslandsmeistararnir munu hafa rætt við Árna sem er kominn heim og er að líta í kringum sig.
Breiðablik ræddi við Árna áður en vetrarglugginn lokaði en ekkert varð úr skiptunum. Árni var þá enn samningsbundinn Al-Sahel í Sádi-Arabíu en samningur hans er nú runninn út og er hann á Íslandi að skoða kosti sína.

Árni, sem er 32 ára, hefur einnig verið orðaður við KR og hann sést á leikjum á Meistaravöllum. Árni er uppalinn hjá Breiðabliki og spilaði síðast með liðinu 2021.
Árni er uppalinn hjá Breiðabliki og spilaði síðast með liðinu 2021. Hann hefur spilað með fjölmörgum liðum í atvinnumennsku víðsvegar um Evrópu síðustu ár.