Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   þri 09. júlí 2019 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
PSG sektar Neymar um 53 milljónir
Mynd: Getty Images
Brasilíska stórstjarna, Neymar, skrópaði á fyrstu æfingu PSG eftir sumarfrí. Neymar er sagður vilja yfirgefa félagið og vill burt frá París.

Sektin hljóðar upp á 375 þúsund evrur eða rúmar 53 milljónir íslenskra króna.

„Paris Saint-Germain finnst þetta ástand leitt og mun gera viðeigandi ráðstafanir vegna þess," segir meðal annars í yfirlýsingunni frá franska stórliðinu sem það sendi frá sér í gær.

UOL Esporte fjölmiðill í Brasilíu, sagði svo frá því síðdegis í dag að PSG hafi ákveðið að sekta Neymar.

Sjá einnig: Neymar mætti ekki á æfingu
Sjá einnig: Neymar eldri: Það vita allir ástæðuna
Sjá einnig: Yfirmaður íþróttamála hjá PSG: Neymar má fara
Athugasemdir
banner
banner