Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
banner
   fös 09. júlí 2021 22:19
Brynjar Óli Ágústsson
Ási: Náðum okkur þrjú langþráð stig
Lengjudeildin
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis.
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrst og fremst ánægður með þrjú stig, góðan sigur á heimavelli,'' sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, eftir 2-1 sigur á móti Selfossi í elleftu umferð Lengjudeildarinnar.

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 -  1 Selfoss

„Mér fannst við byrja leikinn sterkt, eins og við ætluðum. Við komum okkur fljótlega í góða stöðu, 2-0 í hálfleik og ætluðum að fylgja því eftir með kröftugum seinni hálfleik.''

„Það gekk hins vegar ekki, mér fannst Selfyssingarnir betri í seinni hálfleik og náðu góðu marki. Þeir lágu aðeins á okkur í lokin. Sem betur fer náðum við að halda þessu og klára þrjú langþráð stig.''

Hans Viktor Guðmundsson, leikmaður Fjölnis, er búinn að vera lengi meiddur og spurt var um heilsu hans.

„Hans er búinn að vera í þrálátum meiðslum frá því í febrúar, en hann reimaði á sig takkaskó í fyrsta sinn í vikunni og fékk að vera smá stund með á æfingu. Vonandi styttist í hann,'' segir Ási um stöðuna á Hans.

Hægt er að horfa á allt viðtalið fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner