Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   fös 09. júlí 2021 22:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Birnir Snær: Hann er gamall handboltamarkvörður
Birnir Snær Ingason.
Birnir Snær Ingason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var bara geðveikt," sagði Birnir Snær Ingason, leikmaður HK, eftir 2-1 endurkomusigur gegn Fylki í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  2 HK

„Mér fannst við spila mjög vel. Við sköpuðum okkur mikið af færum. Við fáum mark í andlitið úr aukaspyrnu, en við höfðum alltaf trú á að við gætum komið til baka og gerðum það í seinni hálfleik," sagði Birnir jafnframt.

HK er núna tveimur stigum frá öruggu sæti eftir þennan góða sigur í kvöld.

„Það hefði verið hræðilegt að tapa þessum leik, þetta var sex stiga leikur. Það var bráðnauðsynlegt (að vinna)."

Birkir Valur Jónsson bjargað tvisvar á línu. „Hann er gamall handboltamarkvörður, hann kann þetta. Hann var tvisvar á línu rosalega."

Hér að ofan má sjá allt viðtalið en þar er Birnir spurður út í áhuga Víkings á honum.
Athugasemdir
banner
banner