Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fös 09. júlí 2021 22:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bjössi Hreiðars: Ég verð að bíta í það súra epli
Lengjudeildin
Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur.
Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mín skoðun er sú að við vorum algjörlega með þennan leik," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur, eftir 2-2 jafntefli í Ólafsvík.

„Fyrri hálfleikurinn, þá erum við með þá. Við fengum fullt af stöðum til að gera meira en við gerðum. Við erum algjörlega með þetta en í seinni hálfleik hleypum við þeim inn í leikinn."

Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 2 -  2 Grindavík

Grindavík lenti 2-1 undir en þeir náðu að bjarga stigi í uppbótartíma leiksins.

„Þetta var leikur tveggja hálfleikja hjá okkur. Við vorum ekki góðir í seinni hálfleik, það er bara þannig. Ef menn ætla að gefa svona færi á sér, þá fer sem fer. Jafntefli, það er bara niðurstaðan."

„Við vissum að þetta væri stórhættulegur leikur... vindurinn fer úr okkur og mögulega hefði ég átt að gera eitthvað strax í upphafi seinni hálfleiks og hrista upp í öllu saman. Ég verð að bíta í það súra epli að hafa ekki gert það."

Viðtalið má sjá allt hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner