Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. júlí 2021 16:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Caballero kveður Chelsea
Mynd: Getty Images
Willy Caballero er búinn að kveðja Chelsea eftir fjögur ár hjá Lundúnarfélaginu. Markvörðurinn setti inn færslu á Instagram í gær þar sem hann þakkar fyrir tíma sinn hjá félaginu.

Samningur Caballero rann út um mánaðarmótin og segist Caballero spenntur fyrir komandi tímum.

Hann er 39 ára markvörður sem lék ellefu deildarleiki með Chelsea á tímabilunum fjórum. Hann kom til félagsins frá Manchester City og hefur einnig leikið með Boca Juniors, Elche, Arsenal Sarandi og Malaga.

Hjá tíma sínum hjá Chelsea varð hann enska bikarinn, Evrópudeildina og Meistaradeildina.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner