Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 09. ágúst 2018 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bandaríkin: Annar sigur Utah í röð
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Utah Royals 1 - 0 Washington Spirit
1-0 Katie Stengel ('74)

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn er Utah Royals vann sinn annan deildarleik í röð.

Ástandið leit ekki vel út á tímabili þegar Gunnhildur og stöllur voru búnar að vera að tapa hverjum leiknum fætur öðrum en núna tókst þeim að vinna tvo leiki á þremur dögum.

Katie Stengel gerði eina mark leiksins og er hún markahæst í liði Utah með fimm mörk í tuttugu leikjum.

Utah er búið að blanda sér í umspilsbaráttuna með þessum tveimur sigrum í röð og er aðeins einu stigi frá Portland Thorns í fjórða sæti.
Athugasemdir
banner
banner