Topplið Vals valtaði yfir botnlið KR á Meistaravöllum í Bestu deild kvenna í kvöld á meðan Breiðablik missteig sig gegn ÍBV.
Staðan var 3-0 þegar flautað var til hálfleiks á Meistaravöllum en Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir kom að öllum mörkunum, eitt mark og tvær stoðsendingar.
Ásdís Karen Halldórsdóttir bætti fjórða markinu við snemma í síðari hálfleik. Svo var komið að Elínu Mettu Jensen, hún byrjaði á að leggja upp fyrir Þórdísi Elvu Ágústsdóttir og skoraði síðan sjálf sjötta mark Valskvenna.
Það urðu lokatölur leiksins og er Valur komið með sex stiga forystu á toppi deildarinnar eftir að Breiðablik gerði markalaust jafntefli við ÍBV í Eyjum á sama tíma. Heimakonur fóru illa að ráði sínu þegar Madison Elise Wolfbauer skaut framhjá úr vítaspyrnu undir lok leiksins.
KR 0 - 6 Valur
0-1 Mist Edvardsdóttir ('6)
0-2 Rebekka Sverrisdóttir ('17, sjálfsmark)
0-3 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('44)
0-4 Ásdís Karen Halldórsdóttir ('51)
0-5 Þórdís Elva Ágústsdóttir ('68)
0-6 Elín Metta Jensen ('73)
ÍBV 0 - 0 Breiðablik
0-0 Madison Elise Wolfbauer ('84, misnotað víti )
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |