Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 09. október 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sky Sports 
Þríeykið kemur inn í hópinn fyrir leikinn gegn Belgíu
Mynd: Getty Images
Þeir Ben Chilwell, Jadon Sancho og Tammy Abraham koma aftur inn í enska landsliðshópinn í dag.

Þeir eiga möguleika á því að vera í liðinu gegn Belgíu í Þjóðadeildinni á sunnudag.

Vinir Abraham skipulögðu óvænta afmælisveislu í London síðasta laugardag en þar voru meðal annars mættir Sancho og Chilwell. Abraham og Chilwell leika fyrir Chelsea en Sancho er hjá Dortmund.

Sex manna samkomubann er í Englandi vegna kórónuveirunnar og ljóst er að reglur voru brotnar í veislunni þar sem fleiri voru mættir þar. Abraham segir að allir gestir hafi verið hitamældir þegar þeir mættu í veisluna en hefur beðist afsökunar.

Þeir voru ekki með í vináttulandsleik gegn Wales í gær en koma aftur inn í hópinn fyrir leikinn gegn Belgíu og geta spilað þar - ef þeir mælast ekki með kórónuveiruna.
Athugasemdir
banner
banner