Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 09. október 2021 10:20
Aksentije Milisic
Bruce: Glaður að foreldrar mínir sjái ekki þessi ljótu orð
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Newcastle United, talaði um umræðuna sem hefur átt sér stað um hann á samskiptamiðlum.

Bruce hefur ekki verið vinsæll í stjóratíð sinni hjá Newcastle og hafa margir stuðningsmenn liðsins sem og aðrir, gjörsamlega látið hann heyra það á samskiptamiðlum.

Á fimmtudaginn varð það ljóst að fjárfestarnir frá Sádi-Arabíu gengu frá kaupum á Newcastle. Félagið losnaði því loksins við Mike Ashley en hann er ekki vinsæll í Newcastle borg.

„Það hafa verið hlutir skrifaðir og sagðir um mig. Ógeðsleg orð á samskiptamiðlum. Ég er bara ánægður með að foreldrar mínir voru ekki enn á lífi til að sjá og heyra þetta allt. Hjartað á þeim hefði brotnað," sagði Bruce.

Líklegt er að nýju eigendurnir hjá Newcastle muni leita að nýjum stjóra en allt á þetta eftir að koma í ljós.

Athugasemdir
banner
banner
banner