Gríski dómarinn Ioannis Papadopoulos mun dæma leik Íslands og Liechtenstein á mánudaginn.
Papadopoulos er ekki ýkja hátt skrifaður hjá UEFA og hefur að mestu starfað sem fjórði dómari í alþjóðlegum verkefnum.
Þá hefur hann dæmt ýmsa leiki yngri landsliða og var með flautuna í 1-2 tapi íslenska U21 landsliðsins gegn Ítalíu á síðasta ári.
Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen stýrðu þá U21 landsliðinu. Nokkrir sem eru með A-landsliðinu í dag léku þann leik en hér má sjá skýrsluna úr leiknum.
Arnar Laufdal Arnarsson sem skrifaði um leikinn gaf Papadopoulos 3/10 í einkunn fyrir hans frammistöðu.
„Afleit frammistaða hjá Grikkjanum í dag, ótrúlega skrítin lína sem hann setti, flautaði alltof mikið en sleppti svo augljósum dómum og hefði getað dæmt víti fyrir okkur Íslendinga..." skrifaði Arnar.

Allt dómarateymið í kringum leikinn á mánudaginn kemur frá Grikklandi, líka VAR dómararnir.
Athugasemdir