Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 09. október 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gera heimildarmynd um Söru - Veitir konum innblástur
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði.
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara og kærasti hennar, Árni Vilhjálmsson.
Sara og kærasti hennar, Árni Vilhjálmsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir, fremsta fótboltakona Íslands og ein fremsta fótboltakona heims, mun eignast sitt fyrsta barn á næstu vikum.

Sara Björk er komin nokkra mánuði á leið og vill núna sanna fyrir öðrum knattspyrnukonum að það sé hægt að snúa aftur og spila í hæsta gæðaflokki eftir barnsburð.

Íþróttavörumerkið Puma er að fylgjast með Söru í ferlinu og ætlar að gera um hana heimildarmynd.

Tilkynning Puma
PUMA hefur gert samkomulag við Söru Björk Gunnarsdóttur, fyrirliða íslenska landsliðsins og liðsmann franska fótboltaliðsins Lyon. PUMA mun fylgja Söru Björk eftir í gegnum meðgöngu, fæðingu og hvernig hún mun þjálfa sig aftur upp sem atvinnu íþróttakona. Verkefnið er hluti af „She Moves Us” vettvangi PUMA, þar sem fjölbreyttu efni verður streymt frá þessari vegferð Söru Bjarkar og sem mun ná hámarki með frumsýningu á heimildamynd um hana í byrjun næsta árs.

Samfélagsmiðlar PUMA munu reglulega birta fréttir af Söru, á meðgöngu, eftir fæðingu og af þjálfunarprógramminu hennar. Efnið mun þannig veita sýn inn í líf hennar sem móðir og hvernig henni gengur að finna jafnvægi milli fjölskyldulífs og atvinnumennsku. Efnið og heimildarmyndin munu veita einstaka innsýn, sem aldrei hefur sést áður, í líf atvinnuíþróttakonu þar sem hún mætir þeirri áskorun að snúa aftur til atvinnumennsku eftir að hafa fætt barn. Sara opnar glugga inn í vegferð sína, æfingar meðan á meðgöngu stendur, ráð og leiðbeiningar sérfræðinga varðandi breytingar á líkama hennar í þessu ferli og hvernig hún getur byggt sig aftur upp eftir fæðingu.

Margar atvinnuíþróttakonur mæta áskorunum og óvissu þegar kemur að ákvörðunum um að eignast börn. Þær þurfa að taka erfiðar ákvarðanir, sumar þurfa jafnvel að fórna íþróttaferlinum til að stofna til fjölskyldu vegna skorts á stuðningi, takmörkunum á þátttökumöguleikum og hvernig fæðingarorlofi er háttað í ólíkum löndum.

„Það er erfitt að stofna til fjölskyldu þegar þú ert í atvinnumennsku. Ég vil sanna að þú getur snúið aftur eftir fæðingu og haldið áfram að spila meðal þeirra bestu,“ segir Sara Björk. „Ég vona að ég veiti konum innblástur til að gera slíkt og sýni fram á að þú þarft ekki að velja milli þess að eiga fjölskyldu og vera í atvinnumennsku, að það eru fleiri valmöguleikar.“

„Íþróttakonum mæta margar áskoranir á ferlinum og meðganga getur verið ein af þeim,“ segir Matthias Baeumer, framkvæmdastjóri BU Teamsport. „Þegar Sara kom til okkar og tilkynnti að hún væri ólétt vildum við styðja hana eftir bestu getu. Sara ákvað að þetta gæti verið frábært tækifæri til að gefa innsýn inn í vegferð hennar og til að sýna öðrum íþróttakonum að þær geta verið á toppi ferilsins og átt börn á sama tíma. Við erum ótrúlega spennt yfir því að Sara hefur beðið okkur um að taka þátt í þessu með henni og að hún kýs að deila þessari reynslu sinni í þeirri vona að styðja við íþróttakonur um heim allan.“

Ekki gleyma að fylgjast með spennandi efni sem mun birtast í hverjum mánuði á Instagram og Twitter reikningum PUMA Football. Fyrsta innslagið birtist 4. október, 2021, en heimildarmyndin verður frumsýnd í byrjun árs 2022 á Youtube rás PUMA.

Sjá einnig:
Árni Vill: Ég fæ stærri titilinn og eignast barnið eftir nokkrar vikur
Athugasemdir
banner
banner
banner