Ungstirnið Jadon Sancho segist vera mjög ánægður með lífið í herbúðum Borussia Dortmund.
Sancho er aðeins 18 ára gamall en hefur verið einn af betri leikmönnum Dortmund í frábærri byrjun félagsins á tímabilinu.
Dortmund er á toppi þýsku deildarinnar með fjögurra stiga forystu og fær stórveldi FC Bayern í heimsókn í toppslag á laugardaginn.
Sancho kom mikið af bekknum til að byrja með en hefur verið að fá meiri og meiri tíma í byrjunarliðinu. Hann hefur tekið þátt í öllum keppnisleikjum Dortmund á tímabilinu og er búinn að skora fimm mörk og leggja átta upp. Þá varð hann fyrsti Englendingurinn fæddur eftir aldamótin til að vera kallaður upp í A-landsliðið.
Miðjumaðurinn knái hefur verið orðaður við Paris Saint-Germain að undanförnu en hann segist ekki vera á förum.
„Ég er ekki að hugsa um að skipta um félag. Ég stend í þakkarskuld við Dortmund og mér líður mjög vel í þessum leikmannahópi. Mér líður vel hérna og það er ekki af ástæðulausu sem ég skrifaði undir langtímasamning," sagði Sancho við Bild.
„Við vitum hversu sterkir Bæjarar eru en við vitum líka að við getum unnið þá á góðum degi, sérstaklega á heimavelli. Við berum virðingu fyrir þeim en erum einnig fullir sjálfstrausts og vitum hvað við getum gert."
Stöðutaflan
Þýskaland
Bundesliga - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Leverkusen | 26 | 22 | 4 | 0 | 66 | 18 | +48 | 70 |
2 | Bayern | 26 | 19 | 3 | 4 | 78 | 31 | +47 | 60 |
3 | Stuttgart | 26 | 18 | 2 | 6 | 60 | 31 | +29 | 56 |
4 | Dortmund | 26 | 14 | 8 | 4 | 53 | 32 | +21 | 50 |
5 | RB Leipzig | 26 | 15 | 4 | 7 | 60 | 32 | +28 | 49 |
6 | Eintracht Frankfurt | 26 | 10 | 10 | 6 | 42 | 35 | +7 | 40 |
7 | Augsburg | 26 | 9 | 8 | 9 | 43 | 42 | +1 | 35 |
8 | Hoffenheim | 26 | 9 | 6 | 11 | 44 | 50 | -6 | 33 |
9 | Freiburg | 26 | 9 | 6 | 11 | 36 | 48 | -12 | 33 |
10 | Werder | 26 | 8 | 6 | 12 | 35 | 41 | -6 | 30 |
11 | Heidenheim | 26 | 7 | 8 | 11 | 35 | 44 | -9 | 29 |
12 | Gladbach | 26 | 6 | 10 | 10 | 46 | 50 | -4 | 28 |
13 | Union Berlin | 26 | 8 | 4 | 14 | 25 | 42 | -17 | 28 |
14 | Wolfsburg | 26 | 6 | 7 | 13 | 31 | 44 | -13 | 25 |
15 | Bochum | 26 | 5 | 10 | 11 | 30 | 54 | -24 | 25 |
16 | Mainz | 26 | 3 | 10 | 13 | 22 | 46 | -24 | 19 |
17 | Köln | 26 | 3 | 9 | 14 | 20 | 47 | -27 | 18 |
18 | Darmstadt | 26 | 2 | 7 | 17 | 26 | 65 | -39 | 13 |
Athugasemdir