Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. nóvember 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zidane segir Ramos einn þann besta í sögunni
Sergio Ramos.
Sergio Ramos.
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, trúir því að Sergio Ramos sé einn besti varnarmaður sögunnar.

Hinn 34 ára gamli Ramos skoraði sitt 100. mark fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í síðustu viku þegar Real Madrid vann 3-2 sigur á Inter.

Zidane var frábær fótboltamaður á sínum tíma og spilaði hann með og gegn frábærum miðvörðum. Hann segir að Ramos sé einn af þeim bestu sem hefur lifað.

„Sá besti? Hann er einn af þeim," sagði Zidane samkvæmt Daily Mail.

Samningur Ramos rennur út eftir tímabilið en útlit er fyrir að Real Madrid muni framlengja við hann til tveggja ára.
Athugasemdir
banner
banner
banner