Real Madrid hefur ekki unnið í síðustu tveimur deildarleikjum. Liðið tapaði gegn Rayo Vallecano á mánudaginn.
Það er ljóst að liðið verður ekki á toppnum þegar HM hefst þar sem liðið leikur síðasta leikinn á morgun gegn Cadiz og liðið er fimm stigum á eftir erkifjendunum í Barcelona.
Ancelotti hefur ekki verið ánægður með liðið að undanförnu en hann nefnir helst Vinicius og Rodrygo.
„Gæðin hafa dottið niður, Vinicius og Rodrygo hafa klúðrað fleiri færum en venjulega. Asensio hefur verið góður en allir aðrir hafa verið slakari en venjulega," sagði Ancelotti.
Athugasemdir