Povilas Krasnovskis hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum og mun því spila áfram með liðinu næsta sumar.
Povilas er 33 ára gamall miðjumaður en hann hefur leikið 110 leiki og skorað 22 mörk fyrir KFA en hann gekk til liðs við félagið árið 2017.
Povilas er frá Litháen en hann hefur komið sér vel fyrir á fáskrúðsfirði ásamt fjölskyldu sinni.
„Frábært að tryggja þennan reynslumikla leikmann fyrir komandi átök í 2.deildinni." Segir í tilkynningu félagsins á Facebook.
Athugasemdir