Gerard Pique er búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Barcelona, sinn síðasta leik á ferlinum.
Varnarmaðurinn er að leggja skóna á hilluna.
Varnarmaðurinn er að leggja skóna á hilluna.
Pique byrjaði á bekknum gegn Osasuna í gær en hann fékk að líta rauða spjaldið þegar gengið var til búningsklefa í hálfleik. Pique var ósáttur við dómarann og lét hann heyra það.
Búið er að opinbera hvað hann sagði við dómarateymið er þeir gengu til búningsklefa. „Þið eruð búnir að fara illa með okkur. Þetta er synd."
Síðustu orð Pique sem fótboltamaður voru svo: „Ég skít á móður þína sem er vændiskona."
Við það fékk hann verðskuldað rautt spjald. Ferli hans er núna lokið.
Gerard Pique’s last words as a footballer: “I shit on your prostitute mother”
— Sid Lowe (@sidlowe) November 9, 2022
Athugasemdir