Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 09. nóvember 2022 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spá því að Argentína vinni og að Messi verði bestur
Lionel Messi er á leið á sitt síðasta HM.
Lionel Messi er á leið á sitt síðasta HM.
Mynd: Getty Images
EA Sports spáir því að Argentína muni vinna HM í Katar sem hefst eftir ellefu daga.

Tölvuleikjaframleiðandinn hefur notað tölvuleikinn FIFA til að spá fyrir um sigurvegara á síðustu mótum og hefur fengist rétt niðurstaða fyrir mótin 2010, 2014 og 2018.

EA Sports spáir því að erkifjendurnir Argentína og Brasilía muni mætast í úrslitaleiknum í fyrsta sinn.

Það verði Argentína sem muni hafa betur og að Lionel Messi lyfti titlinum er hann stígur síðasta dansinn á HM. Hann er að leika á sínu síðasta móti.

EA Sports spáir því líka að Messi verði markahæstur og besti leikmaður mótsins.


HM hringborðið - Fyrsti Íslendingurinn sem komst á stærsta sviðið
Athugasemdir
banner
banner
banner