Robert Lewandowski var rekinn af velli í sigri Barcelona gegn Osasuna í gær.
Osasuna komst yfir snemma leiks en Barcelona náði að snúa leiknum sér í vil. Lewandowski fékk að líta gula spjaldið stuttu eftir mark Osasuna og fékk sitt annað gula spjald fyrir lok fyrri hálfleiks.
Xavi stjóri Barcelona var alls ekki sáttur með dóminn.
„Rauða spjaldið? Að mínu mati var það grunsamlegt. En það skiptir engu máli hvað ég segi. Eina sem skiptir máli er hvað dómaranum finnst en hann mun ekki segja sína skoðun í dag. Ég held að þeir ættu að koma og útskýra sitt mál því það er mikið í húfi," sagði Xavi.
Það var gefið út að Gerard Pique væri búinn að spila sinn síðasta leik á ferlinum fyrir leikinn í gær en hann var til taks á bekknum. Hann fékk ekki tækifæri á að koma inn á þar sem hann fékk brottvísun fyrir að mótmæla spjaldinu í hálfleik.
Brotið sem Lewandowski uppskar seinna gula spjaldið fyrir:
Lewandowski what are you doing ?? Man just looked at him the whole time then elbowed him, he wasn’t even looking at the ball 😭😭 pic.twitter.com/0ThZhKAmMV
— Ziad is NOT in pain (@Ziad_EJ) November 8, 2022