Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 09. desember 2018 15:04
Arnar Helgi Magnússon
Byrjunarlið Newcastle og Wolves: Neves kemur inn
Ruben Neves
Ruben Neves
Mynd: Getty Images
Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag. Newcastle og Wolves mætast á St. James' Park klukkan 16:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Newcastle gerði góða ferð til Liverpool í síðustu umferð þegar liðið mætti Everton. Lokatölur á Goodison Park urðu 1-1.

Wolves kom heimsbyggðinni á óvart þegar liðið lagði Chelsea af velli í síðustu umferð, 2-1.

Fyrir leikinn situr Wolves í þrettánda sæti deildarinnar með nítján stig, sex stigum meira en Newcastle sem er í fimmtánda sætinu.

Raul Jimenez er á varamannabekk Wolves á meðan Ruben Neves kemur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik.

Byrjunarlið Newcastle:
Dubravka, Yedlin, Lascelles, Fernandez, Clark, Ritchie, Diame, Ki, Atsu, Perez, Rondon

Byrjunarlið Wolves:
Patricio, Bennett, Coady, Boly, Doherty, Neves, Saiss, Vinagre, Traore, Costa, Jota
Athugasemdir
banner
banner
banner