Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 09. desember 2018 20:29
Elvar Geir Magnússon
Leki á BT Sport - Ferdinand kallaði Walker veikan hlekk
Kyle Walker.
Kyle Walker.
Mynd: Getty Images
Rio Ferdinand telur að Kyle Walker sé veikur hlekkur hjá Manchester City. Klippa hefur lekið út þar sem hann segir þetta í myndveri BT Sport.

Ferdinand lét þetta þó ekki út úr sér í beinni útsendingu heldur á meðan auglýsingahlé var í gangi.

Klippa hefur lekið á netið.

„Horfið á Kyle Walker! Sofandi! Horfið á Kyle Walker," sagði Ferdinand.

„Þess vegna, þegar hann er að spila með enska landsliðinu, hann er alltaf veikur hlekkur þegar hann er að spila í hæsta styrkleikaflokki."

Joe Cole var með honum í myndverinu og sagði: „Ég er sammála þér! Ég ætla ekki að segja það í útsendingunni samt því vinur hans er með mér í ræktinni. Allir tala um að Man City sé fullkomið lið. Það er rangt."

Ekki jafn alvarleg ummæli eins og í Klaustursmálinu en áhugaverð þó!
Athugasemdir
banner
banner