Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 09. desember 2018 06:00
Elvar Geir Magnússon
River Plate - Boca Juniors sýndur á Ölveri í kvöld
Stuðningsmaður Boca Juniors.
Stuðningsmaður Boca Juniors.
Mynd: Getty Images
Í kvöld klukkan 19:30 verður seinni úrslitaleikur argentínsku nágrannana River Plate og Boca Juniors í Copa Libertadores, Meistaradeild Suður-Ameríku.

Fyrri leikurinn endaði 2-2 og allt er í járnum.

Um er að ræða einn hatrammasta grannaslag heimsfótboltans en leikið verður á Santiago Bernabeu, heimavelli Real Madrid.

Eins og frægt er var leiknum frestað í síðasta mánuði eftir að stuðningsmenn River Plate réðust á rútu Boca Juniors. Í kjölfarið var River Plate svipt heimaleikjarétti sínum.

Sportbarinn Ölver í Glæsibæ sýnir leikinn í beinni á breiðtjaldi í kvöld fyrir áhugasama. Ölver er samstarfsaðili Innkastsins á Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner