Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 09. desember 2018 12:34
Arnar Helgi Magnússon
Þýskaland: Sara Björk lék í stórsigri Wolfsburg
Sara Björk í leik með Wolfsburg gegn Þór/KA í sumar
Sara Björk í leik með Wolfsburg gegn Þór/KA í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sara Björk Gunnarsdóttir var á sínum stað í byrjunarliði Wolfsburg sem að mætti Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Wolfsburg komst yfir strax á 4. mínútu þegar Alexandra Popp braut ísinn. Tvö mörk frá Caroline Hansen fylgdu í kjölfarið og staðan því orðin 0-3 eftir rúmlega hálftíma leik.

Tanja Pawollek náði að klóra í bakkann fyrir Frankfurt fyrir hálfleikinn og það var Laura Freigang sem að náði að minnka muninn í eitt mark eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik.

Pernille Harder skoraði fjórða mark Wolfsburg þremur mínútum síðar en Lena Goessling og Lena Goessling bættu síðan við sitthvoru markinu, lokatölur 2-6.

Það virðist ekkert lát ætla að verða á velgengni Wolfsburg en liðið er með átta stiga forskot eftir tólf leiki, taplaust.
Athugasemdir
banner
banner
banner