Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. janúar 2019 16:16
Arnar Helgi Magnússon
Emery: Ég virði ákvörðun Ramsey
Mynd: Getty Images
Unai Emery, stjóri Arsenal segist virða ákvörðun Aaron Ramsey að ætla að ganga til liðs við Juventus eftir tímabilið.

Emery svaraði spurningum blaðamanna fyrr í dag fyrir leikinn gegn West Ham á laugardaginn. Þar var hann spurður út í Ramsey.

„Við þurfum á hans kröftum að halda út tímabilið. Hann er einbeittur og leggur sig fram á æfingum. Ég er mjög ánægður með hann," segir Emery.

„Ég spurði hann fyrir síðasta leik hvort að hann myndi treysta sér til þess að hjálpa liðinu og hann sagðist ætla að leggja sig allan fram."

Framtíðin er hans. Á meðan hann leggur sig fram á æfingum hjá okkur og sinnir starfi sínu þá er ég ánægður með hann. Nú er okkar fókus á West Ham á laugardag."

Leikur West Ham og Arsenal hefst klukkan 12:30 á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner