Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 10. janúar 2019 14:30
Arnar Helgi Magnússon
Emery fær ekki að kaupa leikmenn - Fær mögulega á láni
Mynd: Getty Images
Arsenal mun ekki kaupa neina leikmenn í janúar en gæti þó fengið einhverja leikmenn á láni. Þetta staðfesti Unai Emery á blaðamannafundi fyrr í dag.

„Við erum ekki að fara kaupa neinn en ég held því opnu varðandi það að fá einhvern til okkar á láni," sagði Emery á fundinum.

Denis Suarez, leikmaður Barcelona hefur verið orðaður við félagið síðan í desember.

„Ég veit ekki nákvæmlega hvernig málin með Suarez standa. Félagið er að vinna í þeim málum og vonandi fáum við einhverja leikmenn sem geta hjálpað okkur út leiktíðina."

Arsenal mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

„Þeir eru á heimavelli með sína stuðningsmenn, þetta verður erfitt. Hver einasti leikur er áskorun og leikurinn á laugardaginn er ný áskorun. Við erum tilbúnir og ætlum að gefa allt í leikinn og vonandi uppskera sigur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner