Santiago Solari, þjálfari Real Madrid á Spáni, telur að leikurinn gegn Leganes hafi verið of mikilvægur til þess að byrja spænska miðjumanninum Isco.
Real Madrid vann öruggan 3-0 sigur á Leganes þar sem Sergio Ramos, Lucas Vazquez og Vinicius Junior skoruðu mörkin.
Isco byrjaði á bekknum en staða hans hefur mikið verið rædd á Spáni og hefur hann þá verið orðaður við mörg stórlið.
Hann kom inná á 71. mínútu í gær en Solari taldi leikinn of mikilvægan til að setja Isco í byrjunarliðið. Menn á borð við Gareth Bale og Marco Asensio eru meiddir og því undarlegt að Isco hafi ekki fengið tækifærið.
„Það eru 24 leikmenn í hópnum og mitt hlutverk er að velja liðið og það er ekkert sérstaklega notalegt. Af hverju byrjaði Isco ekki? Því þetta var mikilvægur leikur fyrir okkur," sagði Solari.
Athugasemdir