Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 10. janúar 2020 09:38
Magnús Már Einarsson
Bjarni Mark inn í landsliðshópinn
Jón Dagur ekki með
Bjarni Mark Antonsson.
Bjarni Mark Antonsson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Jón Dagur Þorsteinsson á við meiðsli að stríða og getur því ekki tekið þátt í komandi vináttuleikjum A landsliðs karla í Los Angeles í Bandaríkjunum.

Í hans stað hefur Bjarni Mark Antonsson verið kallaður inn í hópinn, en þetta er í fyrsta sinn sem hann er í hóp hjá A landsliði karla.

Bjarni átti mjög gott tímabil með Brage í sænsku B-deildinni í fyrra eftir að hann kom til félagsins frá KA.

Ísland mætir Kanada á Championship Soccer Stadium 15. janúar og El Salvador á Dignity Health Sports Park fjórum dögum síðar, 19. janúar.

Markverðir
Elías Rafn Ólafsson (2000) - FC Midtjylland (3 U21 leikir)
Patrik Sigurður Gunnarsson (2000) - Brentford (7 U21 leikir)
Hannes Þór Halldórsson (1984) - Valur (67 A leikir)

Varnarmenn 
Kári Árnason (1982) - Víkingur (81 A leikur, 6 mörk) 
Hólmar Örn Eyjólfsson (1990) - Levski Sofia (12 A leikir, 1 mark)
Daníel Leó Grétarsson (1995) - Aalesund (6 U21 leikir, 1 mark) 
Birkir Már Sævarsson (1984) - Valur (90 A leikir, 1 mark) 
Davíð Kristján Ólafsson (1995) - Aalesund (1 A leikur)
Ari Leifsson (1998) - Fylkir (14 U21 leikir, 1 mark) 
Oskar Sverrisson (1992) - BK Häcken
Alfons Sampsted (1998) - Norrköping (26 U21 leikur, 1 mark)

Miðjumenn 
Samúel Kári Friðjónsson (1996) - Viking Stavanger (8 A landsleikir)
Mikael Neville Anderson (1998) - FC Midtjylland (3 A leikir) 
Aron Elís Þrándarson (1994) - OB (3 A leikir)
Alex Þór Hauksson (1999) - Stjarnan (1 A leikur) 
Höskuldur Gunnlaugsson (1994) - Breiðablik (7 U21 leikir, 2 mörk)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (1996) - ÍA (3 A leikir, 1 mark)
Stefán Teitur Þórðarson (1998) - ÍA (12 U21 leikir, 1 mark)
Bjarni Mark Antonsson (1995) - IK Brage

Sóknarmenn 
Kristján Flóki Finnbogason (1995)- KR (4 A leikir, 1 mark)
Óttar Magnús Karlsson (1997) - Víkingur (7 A leikir, 2 mörk)
Kjartan Henry Finnbogason (1986) - Vejle 11 A leikir, 2 mörk) 
Kolbeinn Sigþórsson (1990) - AIK (56 A leikir, 26 mörk)
Athugasemdir
banner
banner