Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 10. janúar 2020 16:15
Magnús Már Einarsson
Bruce: Ennþá talsvert í samkomulag um Lookman
Lookman lék áður með Everton.
Lookman lék áður með Everton.
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Newcastle, segir að samningar séu ekki í augsýn varðandi Ademola Lookman leikmann RB Leipzig.

Lookman vill fara frá Leipzig en hann hefur einungis byrjað einn leik í þýsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Bruce hefur áhuga en segir erfitt að ná samkomulagi í þessum mánuði.

„Ég held að við höfum verið orðaðir við 38 leikmenn og hann er einn af þeim," sagði Bruce.

„Hann er góður leikmaður og ég er aðdáandi hans, hver væri það ekki? Það er svolítið langt í samkomulag í augnablikinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner