Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. janúar 2020 12:41
Magnús Már Einarsson
Giroud nær samkomulagi við Inter
Mynd: Getty Images
Inter hefur náð samkomulagi við umboðsmenn Olivier Giroud framherja Chelsea.

Giroud verður samningslaus í sumar en útlit er fyrir að Inter kaupi hann í þessum mánuði.

Hinn 33 ára gamli Giroud hefur sjálfur samþykkt tveggja og hálfs árs samning við Inter en nú þurfa félögin að ná saman.

Inter vill ekki greiða meira en 4,3 milljónir punda en Chelsea vill fá 6,8 milljónir punda fyrir hann.

Lyon og fleiri félög vilja líka fá Giroud í sínar raðir en Inter og Chelsea eru nú í viðræðum um skiptin.
Athugasemdir
banner
banner
banner