Þýski vængmaðurinn Leroy Sane er á batavegi eftir erfið hnémeiðsli sem hann hlaut í ágúst.
Mikil umræða hefur verið um framtíð leikmannsins en samningur hans við Manchester City rennur út 2021.
Bayern München vill fá Sane en viðræður City um nýjan samning hafa ekki gengið vel.
Mikil umræða hefur verið um framtíð leikmannsins en samningur hans við Manchester City rennur út 2021.
Bayern München vill fá Sane en viðræður City um nýjan samning hafa ekki gengið vel.
„Ég þekki hann vel. Ég ýtti á að fá hann hingað, þrátt fyrir að hann átti ekki fast byrjunarliðssæti hjá Schalke," segir Pep Guardiola, stjóri City.
„Ég get ekki gert meira. Hann er frábær náungi en ég vil bara að hann komi öflugur úr meiðslunum. Hnéð á honum lítur vel út. Það sem gerist svo er ekki í mínum höndum. Ég ræð því ekki hvað Sane gerir."
Athugasemdir