Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. janúar 2020 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Inter hafnaði tilboði West Ham í Gabigol
Gabriel ,,Gabigol
Gabriel ,,Gabigol
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Inter hefur hafnað tilboði West Ham í brasilíska sóknarmanninn Gabriel Barbosa. Þetta kemur fram í ítölskum miðlum í dag.

Barbosa var einn heitasti framherji heims á síðasta ári en hann skoraði 34 mörk í 43 leikjum með Flamengo. Hann var hetjan er liðið vann þá Copa Libertadores og brasilísku deildina.

Hann var á láni hjá Flamengo frá Inter en hann átti erfitt uppdráttar er hann samdi við ítalska liðið árið 2016. Hann spilaði aðeins 10 leiki með liðinu og skoraði 1 mark áður en hann var lánaður til Benfica og síðar Santos.

Barbosa skoraði 27 mörk árið 2018 með Santos en var svo lánaður til Flamengo á síðustu leiktíð. Mikill áhugi er á honum en samkvæmt ítölsku miðlunum þá hafnaði Inter 18 mánaða lánstilboði frá West Ham.

Flamengo vill fá framherjann aftur en félagið hefur ekki náð samkomulagi við Inter um verð. Inter vill fá nokkuð háa upphæð fyrir leikmanninn til að fjárfesta í miðjumanni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner