Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. janúar 2020 23:17
Brynjar Ingi Erluson
Kjarnafæðismótið: Þorri Mar skoraði tvö í sigri KA á Magna
Þorri Mar Þórisson (t.h) skoraði tvö mörk fyrir KA
Þorri Mar Þórisson (t.h) skoraði tvö mörk fyrir KA
Mynd: KA.is
Tveir leikir fóru fram í Kjarnafæðismótinu í kvöld en KA vann Magna 4-1 í A-deildinni á meðan Þór 2 og KF gerðu markalaust jafntefli í B-deildinni.

KA komst yfir gegn Magna undir lok fyrri hálfleiks en Þorri Mar Þórisson gerði markið.

Hann bætti við öðru marki í byrjun síðari hálfleiks áður en Hrannar Björn Steingrímsson gerði þriðja markið á 55. mínútu. Þorsteinn Már Þorvaldsson minnkaði muninn fyrir Magna á 73. mínútu. Undir lok leiks gerðu KA-menn fjórða markið en Tómas Örn Arnarson varð þá fyrir því óláni að koma knettinum í eigið net.

Lokatölur 4-1 og KA með þrjá sigra af þremur mögulegum. Magni er hins vegar aðeins með þrjú stig eftir þrjá leiki.

Í B-deildinni gerðu Þór 2 og KF markalaust jafntefli. Bæði lið eru með fjögur stig eftir tvo leiki.

Úrslit og markaskorarar:

KA 4 - 1 Magni
1-0 Þorri Mar Þórisson ('45 )
2-0 Þorri Mar Þórisson ('47 )
3-0 Hrannar Björn Steingrímsson ('55 )
3-1 Þorsteinn Már Þorvaldsson ('73 )
4-1 Tómas Örn Arnarson ('90, sjálfsmark )

Þór 2 0 - 0 KF
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner