Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 10. janúar 2020 22:49
Brynjar Ingi Erluson
Moyes: Á Rice að binda hendur fyrir aftan bak?
David Moyes
David Moyes
Mynd: Getty Images
David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham, var svekktur eftir 1-0 tapið gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en hann segir að sá sem tók ákvörðun um að ógilda mark Robert Snodgrass hafi haft rangt fyrir sér.

„Við áttum í það minnsta skilið að gera jafntefli, jafnvel meira. Við erum svekktir því við skoruðum gott mark og það var dæmt af. Varnarmaðurinn gerði vel og kom hausnum í boltann og þaðan fór boltinn í Declan en þetta var gott og gilt," sagði Moyes.

„Sá sem skoðaði markið tók ranga ákvörðun því þetta átti að gilda. Hvað á a Declan að gera við hendurnar á sér, binda þær aftan fyrir bak?" sagði hann ennfremur.

Lukasz Fabianski, markvörður West Ham, meiddist í leiknum og kom David Martin inn fyrir hann en Sheffield United skoraði mark sitt eftir mistök frá Martin.

„Hann fann einhvern verk í lærinu. Ég vona að hann verði ekki lengi frá en við þurfum að bíða og sjá hvað kemur út úr þessu," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner