Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. janúar 2020 21:34
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmótið: KR lagði Fylki
Stefán Árni Geirsson skoraði fyrir KR
Stefán Árni Geirsson skoraði fyrir KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir 1 - 2 KR
1-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('25 )
1-1 Stefán Árni Geirsson ('33 )
1-2 Oddur Ingi Bjarnason ('57 )

KR lagði Fylki 2-1 í Reykjavíkurmóti karla í kvöld en leikurinn fór fram í Egilshöll.

Valdimar Þór Ingimundarson kom Fylkismönnum yfir á 25. mínútu áður en Stefán Árni Geirsson jafnaði metin aðeins átta mínútum síðar.

Arnór Gauti Ragnarsson fékk fullkomið tækifæri til að koma Fylki aftur yfir er liðið fékk vítaspyrnu en hann klikkaði á punktinum.

Oddur Ingi Bjarnason gerði sigurmark KR á 57. mínútu leiksins og þar við sat.

Lokatölur 2-1 fyrir KR en þetta var fyrsti leikur KR í A-riðlinum. Fylkir er búið að spila tvo leiki og er án stiga.


Athugasemdir
banner
banner
banner