Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 10. janúar 2020 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu atvikið: Messi reifst við Joao Felix
Lionel Messi
Lionel Messi
Mynd: Getty Images
Það var heitt í hamsi er Atlético Madrid og Barcelona mættust í undanúrslitum Ofurbikarsins í gær en í upphafi síðari hálfleiks rifust stjörnuleikmenn liðanna.

Á 47. mínútu rifust þeir Lionel Messi og Joao Felix á vellinum áður en leikmenn aðskildu þá.

Luis Suarez, framherji Barcelona, var þó ekkert sérstaklega sáttur með Felix og veittist að honum en ekki er vitað hvað fór þeirra á milli.

Atlético vann leikinn 3-2 og er komið í úrslitaleik Ofurbikarsins en þá má gera ráð fyrir því að Ernesto Valverde, þjálfari Börsunga, verði látinn fara á næstu dögum.


Athugasemdir
banner
banner
banner