Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. janúar 2020 21:19
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Markvörður West Ham gerði slæm mistök
David Martin
David Martin
Mynd: Getty Images
David Martin, markvörður West Ham United, gerði slæm mistök sem varð til þess að Sheffield United komst 1-0 yfir en liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni.

Martin tók útspark og ætlaði að senda boltann á Fabian Balbuena en boltinn var of fastur.

John Fleck náði til knattarins og lagði hann til hliðar á Oli McBurnie sem skaut á mitt markið. Afgreiðslan hjá McBurnie var slök og átti Martin möguleika á að verja boltann en hann hafnaði þrátt fyrir það í netinu.

Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner