Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 10. janúar 2020 14:01
Elvar Geir Magnússon
Stutt í Laporte
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola sagði á fréttamannafundi í dag að varnarmaðurinn Aymeric Laporte væri ekki orðinn leikfær.

Miðvörðurinn er að ljúka endurhæfingu sinni eftir hnémeiðsli.

Eftir leikinn gegn Aston Villa á sunnudag fær City vikufrí en það virðist stutt í Laporte.

Guardiola segir að Laporte sé að æfa og það hafi ekki komið neitt bakslag en hann bíður eftir því að læknaliðið segi hvenær hann geti snúið aftur út á keppnisvöllinn.

Laporte er lykilmaður hjá City og hefur hans verið sárt saknað þá fjóra mánuði sem hann hefur misst út vegna hnémeiðsla sem hann hlaut í ágúst.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner