Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 10. janúar 2023 19:59
Brynjar Ingi Erluson
Alfons áfram í bikarnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hollenska liðið Twente er komið í 16-liða úrslit hollenska bikarsins eftir að hafa unnið Telstar, 3-1, í kvöld. Alfons var í byrjunarliði annan leikinn í röð.

Alfons gekk í raðir Twente undir lok síðasta árs en hann kom á frjálsri sölu frá Bodö/Glimt.

Hann var í byrjunarliðinu í fyrsta leik deildarinnar eftir HM-hléið og vannst sá leikur en hann var aftur í liðinu í bikarnum í kvöld.

Blikinn spilaði í hægri bakverði og var með öflugustu mönnum liðsins áður en honum var skipt af velli þegar þrettán mínútur voru eftir.

Twente er því komið áfram í 16-liða úrslit en dregið verður á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner