Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 10. janúar 2023 12:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Joao Felix ferðast til London í dag - Framlengir fyrst við Atletico
Joao Felix.
Joao Felix.
Mynd: Getty Images
Portúgalski landsliðsmaðurinn Joao Felix mun á næstu klukkutímum fljúga til London þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun fyrir félagaskipti sín til Chelsea.

Það er búið að ná samkomulagi um það að hann klári leiktíðina hjá Chelsea á Englandi.

Enska félagið mun borga 11 milljónir evra til þess að fá hann á láni, og mun Chelsea þar að auki borga laun hans að fullu.

Áður en hann fer til Chelsea mun hann skrifa undir nýjan samning við Atletico til 2027 en það ýtir undir það að Diego Simeone sé að hætta sem þjálfari liðsins. Felix og Simeone hafa ekki náð vel saman síðan Portúgalinn kom frá Benfica fyrir 126 milljónir evra sumarið 2019.

Chelsea er sem stendur tíu stigum frá Meistaradeildarsæti en félagið vonast eflaust til þess að Felix muni hjálpa liðinu að komast nær hvað það varðar.
Enski boltinn - Hvað er að hjá Liverpool og hvað gerir Boehly?
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner