Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 10. febrúar 2019 13:57
Arnar Helgi Magnússon
Championship: Norwich endurheimti toppsætið
Mynd: Getty Images
Norwich 3 - 0 Ipswich Town
1-0 Onel Hernandez ('2 )
2-0 Teemu Pukki ('65 )
3-0 Teemu Pukki ('81 )

Norwich endurheimti toppsætið í Championship deildinni þegar liðið lagði botnlið Ipswich af velli en leikurinn kláraðist fyrir skömmu.

Það voru ekki liðnar nema rúmlega 80 sekúndur af leiknum þegar Onel Hernandez kom Norwich yfir eftir sendingu frá Mario Vrančić.

Freddie Sears, einn helsti sóknarmaður Ipswich, fór meiddur af velli rétt fyrir hálfleik. Mikið áfall fyrir gestina. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og því heimamenn sem leiddu í hálfleik.

Finnski framherjinn Teemu Pukki tvöfaldaði forystu Norwich á 65. mínútu og staðan orðin ansi dökk fyrir gestina. Pukki var aftur á ferðinni á 81. mínútu þegar hann skoraði annað mark sitt og þriðja mark Norwich.

Fleiri urðu mörkin ekki og Norwich komið í toppsæti deildarinnar, með tveimur fleiri stig en Leeds.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner