Tveir leikir voru spilaðir í C-riðli Fótbolta.net mótsins í gær en þeim riðli er nú lokið.
Víðir sótti flottan sigur á Bessastaðavöll en liðið fór með 0-2 sigur af hólmi. Helgi Þór Jónsson og Ari Steinn Guðmundsson með mörk Víðis í leiknum.
Í síðari leik dagsins mættust KV og Árborg en fyrir leikinn dugði KV sigur til þess að vinna riðilinn.
Ástráður Leó, Einar Már og Viktor Máni skoruðu allir eitt mark í fyrri hálfleik og staðan því 3-0 þegar flautað var til hálfleiks.
Viktór Máni skoraði sitt annað mark og fjórða mark KV í síðari hálfleik en fleiri urðu mörkin ekki og KV stendur uppi sem sigurvegari í riðli 2 í C-deild Fótbolta.net mótsins.
KV mætir sigurvegara úr riðli 1 en sá riðill er ekki enn búinn en Þróttur V. er í toppsætinu sem stendur.
Álftanes 0 - 2 Víðir
0-1 Helgi Þór Jónsson
0-2 Ari Steinn Guðmundsson
KV 4 - 0 Árborg
1-0 Ástráður Leó Birgisson
2-0 Einar Már Þórisson
3-0 Viktor Máni Róbertsson
4-0 Viktor Máni Róbertsson
Athugasemdir