Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. febrúar 2019 15:45
Arnar Helgi Magnússon
Guðlaugur Victor spilaði í naumi tapi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Victor Pálsson spilaði allan tímann með Darmstadt í 1-2 tapi gegn FC Heidenheim í þýsku B-deildinni í dag.

Robert Glatzel skoraði tvívegis fyrir Heidenheim áður en að Johannes Wurtz klóraði í bakkann fyrir Darmstad á 84. mínútu. Lengra komst liðið ekki og tap á heimavelli því staðreynd.

Guðlaugur Victor fékk gult spjald á 58. mínútu leiksins.

Heidenheim er í harðri baráttu um sæti í Bundesligunni en liðið situr í fjórða sæti deildarinnar, þremur stigum frá toppsætinu.

Darmstad, lið Guðlaugs, er í fjórtánda sæti af átján liðum í deildinni.

Það verður Íslendingaslagur í næstu umferð þegar SV Sandhausen og Darmstad mætast en Rúrik Gíslason leikur með Sandhausen.


Athugasemdir
banner
banner
banner