Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. febrúar 2019 12:50
Arnar Helgi Magnússon
Mata: Látum Martial hafa boltann og við vinnum!
Mynd: Getty Images
Anthony Martial átti enn einn stórleikinn í liði Manchester United í gær þegar liðið sigraði Fulham örugglega, 3-0.

Frakkinn skoraði mark í leiknum ásamt því að leggja upp mark fyrir Paul Pogba.

Juan Mata, liðsfélagi Martial, hrósaði leikmanninum í hástert eftir leikinn í gær.

„Markið sem að Martial skoraði í dag, það eru nokkrir leikmenn í heiminum sem að hafa þessa tækni og geta skorað svona mörk. Ég elska Martial. Ef hann á góða leiki þá vinnur liðið yfirleitt alltaf."

„Ég segi alltaf það sama, gefið boltann til Martial og við munum vinna lekinn," sagði Mata léttur eftir leikinn í gær.

Manchester United skaust upp í 4. sæti deildarinnar með sigrinum en Chelsea getur endurheimt sætið þegar liðið mætir Manchester City síðar í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner