Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. febrúar 2019 13:12
Arnar Helgi Magnússon
Nantes leikur í svörtu í dag - Kostar 9 evrur á völlinn
Mynd: Nantes
Franska liðið Nantes leikur sinn fyrsta leik í dag eftir að andlát Emiliano Sala var staðfest í vikunni.

Emiliano Sala var í flugvélinni sem að hrapaði yfir Ermasundi þann 21. janúar síðastliðin ásamt flugmanni vélarinnar, David Ibbotson. Líkamsleifar Ibbotson eru enn ófundnar.

Nantes leikur við Nîmes í dag og hefst leikurinn klukkan tvö. Búningar Nantes í leiknum verða svartir til minningar um Sala sem var í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins.

Hann var búinn að skora þrettán mörk á tímabilinu.

Félagið hefur einnig brugðið á það ráð að miðaverðið á leikinn í dag verði það sama, óháð í hvaða sæti. Allir borga níu evrur fyrir miðann sinn en Sala lék í treyju númer 9.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner