Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 10. febrúar 2021 19:21
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Auðvelt fyrir Man City í Swansea
Mynd: Getty Images
Swansea 1 - 3 Man City
0-1 Kyle Walker ('30)
0-2 Raheem Sterling ('47)
0-3 Gabriel Jesus ('50)
1-3 Morgan Whittaker ('77)

Stórlið Manchester City er komið áfram í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir auðveldan sigur gegn Swansea City í fyrsta leik kvöldsins.

Kyle Walker gerði eina markið í fyrri hálfleik og voru lærisveinar Pep Guardiola óheppnir að bæta ekki við forystuna fyrr en eftir leikhlé.

Raheem Sterling og Gabriel Jesus gerðu þá út um viðureignina með tveimur mörkum á skömmum tíma.

Bæði lið gerðu skiptingar og minnkaði Morgan Whittaker muninn fyrir Svanina en nær komust þeir ekki og lokatölur 1-3.
Athugasemdir
banner
banner
banner