Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. febrúar 2021 22:13
Ívan Guðjón Baldursson
Gylfi með aðra stoðsendingu - Framlengt í Liverpool
Mynd: Getty Images
Það er ótrúlega fjörugur bikarleikur í gangi í Liverpool þessa stundina, þar sem Everton er að spila við Tottenham.

Staðan er 4-4 eftir venjulegan leiktíma og því hefur verið gripið til framlengingar.

Gylfi Þór Sigurðsson er enn á vellinum enda er hann að eiga stórleik þar sem hann er búinn að skora eitt mark og leggja tvö upp.

Gylfi lagði upp fyrir Dominic Calvert-Lewin og skoraði svo sjálfur úr vítaspyrnu fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik lagði hann svo upp fyrir Richarlison í stöðunni 3-3.

Það verður áhugavert að fylgjast með framlengingunni og hvort Gylfa takist að hafa frekari áhrif á þennan æsispennandi slag.

Sjáðu fjórða mark Everton.

Sjá einnig:
Sjáðu mörkin: Gylfi með mark og stoðsendingu fyrir leikhlé
Athugasemdir
banner
banner
banner