Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   þri 10. mars 2020 17:09
Elvar Geir Magnússon
Fleiri áhorfendalausir leikir bætast við - Tómur völlur þegar Bayern mætir Chelsea
Frank Lamard, stjóri Chelsea.
Frank Lamard, stjóri Chelsea.
Mynd: Getty Images
Meistaradeildarleikur Bayern München og Chelsea í næstu viku verður leikinn bak við luktar dyr vegna kórónaveirunnar.

Þetta er enn einn leikurinn sem verður áhorfendalaus.

Leikurinn verður á Allianz Arena í Þýskalandi fyrir framan tómar stúkur en Bayern er með öll spil á sínum höndum eftir 3-0 sigur í fyrri leiknum.

Meistaradeildin - Seinni leikir 16 liða úrslita

10. mars
RB Leipzig - Tottenham: Hefðbundið
Valencia - Atalanta: ÁHORFENDALAUS

11. mars
Liverpool - Atletico Madrid: Hefðbundið
PSG - Borussia Dortmund: ÁHORFENDALAUS

17. mars
Juventus - Lyon: Engin ákvörðun hefur verið tekin en íþróttabann er á Ítalíu til 3. mars.
Man City - Real Madrid: Hefðbundið

18. mars
Barcelona - Napoli: ÁHORFENDALAUS
Bayern München - Chelsea: ÁHORFENDALAUS
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner