Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. mars 2020 15:05
Magnús Már Einarsson
Klopp vonar að Anfield hjálpi gegn Atletico
Mynd: Getty Images
„Það hafa ekki margir leikmenn þeirra (Atletico Madrid) spilað á Anfield áður og við viljum nota það til að hjálpa okkur," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool á fréttamannafundi í dag.

Atletico Madrid kemur í heimsókn á Anfield á morgun í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Atletico leiðir 1-0 eftir fyrri leikinn.

„Stuðningsmennirnir hjálpa okkur og við þurfum að sýna það með frammstöðunni á vellinum. Frammistaðan þarf að vera stórkosleg því að þeir verjast aftarlega og eru hættulegir í skyndisóknum. Hver og einn leikmaður er hættulegur hjá þeim og þeir eru með reynslumikið lið."

„Ég ber mikla virðingu fyrir þeim en það eru alltaf til leiðir og við þurfum að finna þær á morgun. Við þurfum að sýna að við höfum lært af fyrri leiknum."

Athugasemdir
banner
banner
banner