Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður, sagði frá því í íþróttafréttum RÚV í kvöld að vonast sé til þess að Birkir Bjarnason og Emil Hallfreðsson, landsliðsmenn, komi til landsins á morgun.
Ísland mætir Rúmeníu í undanúrslitum umspils fyrir EM þann 26. mars næstkomandi. Leikið er á Laugardalsvelli.
Leikmennirnir spila báðir á Ítalíu en allir ferðalangar þaðan eiga að fara í tveggja vikna sóttkví þegar þeir koma til Íslands vegna kórónuveirunnar. Báðir leikmenn fara í sóttkví við komuna til landsins.

Ólympíusamband Ítalíu hefur ákveðið að banna íþróttaviðburði í landinu til 3. apríl til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar.
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, var í viðtali í íþróttafréttum RÚV og hún býst við að leikmennirnir muni æfa einir á meðan þeir eru í sóttkví.
„Við ætlum að byrja á að koma þeim til landsins og koma þeim í sóttkví og taka síðan stöðuna," sagði Klara.
Ekki er enn búið að tilkynna landsliðshópinn, en virðist vera að Emil og Birkir séu í honum.
Athugasemdir