Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 10. mars 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi fjarri góðu gamni á æfingu
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson var hvergi sjáanlegur á æfingu hjá Everton í dag. Þetta kemur fram á Liverpool Echo í dag.

Það segir í greininni að Yerry Mina og Seamus Coleman hafi báðir snúið aftur til æfinga, en hvorki James Rodriguez né Gylfi hafi verið með á æfingunni.

James hefur verið frá vegna meiðsla en Everton á enn eftir að segja frá því af hverju Gylfi var ekki með í dag.

Carlo Ancelotti, stjóri Everton, mun upplýsa fjölmiðlamenn um stöðuna á leikmannahópi sínum síðar í þessari viku.

Það er vonandi að Gylfi sé ekki meiddur. Fyrstu leikirnir í undankeppni HM eru síðar í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner